Hleð......

Rafræn umsókn

Sótt er um í sjóðinn á rafrænu eyðublaði hér fyrir neðan

Sækja um

 

Upplýsingar:

  • Sjóðurinn tekur mið af kaupgengi Seðlabanka Íslands við útreikninga erlendra reikninga í þeirri mynt er um ræðir hverju sinni miðað við dagsetningar reikninga.
  • Eingöngu sveitafélög og stofnanir þeirra geta sótt um styrki til sjóðsins.
  • Með umsóknum þarf að fylgja þátttakendalisti með kennitölum og nöfnum þátttakenda. Umsóknir eru ekki teknar fyrir fyrr en öll gögn hafa borist sjóðnum. 
  • Greiðslur styrkja eru greiddar út að loknu verkefni:

Að verkefni loknu er styrkhöfum skylt að skila sjóðsstjórn greinargerð um verkefnið og hvort það mætti fyrir fram áætluðum markmiðumá, kostnaðaryfirliti ásamt löggildum reikningum og greiðslukvittunum. Skil á gögnum er á ábyrgð umsjónarmanns umsóknar.

Þar sem umsóknir í sjóðinn hafa verið umfram áætlanir eru samþykktir styrkir greiddir út til stofnanna um það bil þremur mánuðum eftir að reikningar og greinargerð hafa skilað sér til sjóðsins að verkefni loknu, eða eftir stöðu sjóðsins hverju sinni. 

Ánægjulegt er að stofnanir nýti sjóðinn svo vel til starfsþróunar sinna starfsmanna, og þakkar sjóðurinn fyrir biðlundina. 

Upp